Ultrahuman M1 hjálpar þér að snérsníða mataræðið þitt að þínum líkama!
Ultrahuman M1 er sílesandi blóðsykursmælir sem mælir blóðsykurinn þinn allan sólarhringinn í 14 daga samfellt
svo þú getir skilið betur hvernig þú getur hámarkað heilsu þína, bætt mataræðið og komið þér í topp form.
Lærðu inn á þinn líkama - engir tveir eru eins!
M1 er þinn áttaviti til framúrskarandi heilsu!
- Enduruppgötvaðu næringu og hvaða matvæli henta þínum líkama best
- Endurnýjaðu orkuna þína
- Bættu svefngæðin
Efnaskipti líkamans koma reglu á svefninn, matarlyst, líkamsþyngd og orku.
UPPGÖTVAÐU ÞÍN VIÐBRÖGÐ
Það er ekki aðeins eitt mataræði sem hentar öllum. Við erum öll einstök með mismunandi næringarþarfir og mismunandi getu til að vinna úr matvælum. M1 mælirinn sýnir þér hvernig þinn líkami bregst við mismunandi matvælum. Þannig getur þú sérsniðið mataræðið þitt að þínum líkama til að komast í betra form og upplifa bætta orku og heilbrigði.
MATARÆÐI
Þín uppáhalds fæða gæti verið að valda óhóflegum blóðsykurssveiflum sem skaða þína heilsu og draga úr daglegri orku þinni.
Efnaskiptin þín skipta sköpum fyrir heilsuna, því meira sem þú veist hvernig þinn líkami bregst við hinum ýmsu fæðutegundum því betur getur þú stjórnað vegferð þinni í átt að betri heilsu og auknum lífsgæðum.
ORKA
Ekki sætta þig við orkuleysi, heilaþoku eða óvelkomin aukakíló sem virðast aldrei haggast hvað sem þú reynir.
Það er ekki eðlilegt ástand.
Það er kominn tími til að skilja betur og læra hvaða fæða hentar þér best og ná framúrskarandi heilsu og fyrirbyggja alvarlega lífsstílssjúkdóma.
Ultrahuman - Sílesandi blóðsykursmælir
M1 mælirinn/smáforritið styður við Iphone 7 og nýrri ásamt Android símum sem hafa NFC skanna, Android 5.0 eða nýrri uppfærslu og Google Play Store.
Fyrir hvern er þessi mælir?
- M1 mælirinn er fyrir þá sem vilja efla eigin heilsu, vellíðan og árangur með því að fá innsýn í hvernig þeirra líkami bregst við mismunandi matvælum.
Hvernig virkar þessi mælir?
- M1 mælirinn er svokallaður sílesandi blóðsykursmælir. Mælir sem hvílir á upphandlegg með blöðku sem fer undir húðina og mælir blóðsykurinn allann sólarhringinn. Mælirinn er vatnsheldur og endist í 14 daga.
Má ég fara í sturtu og sund með mælinn?
- Mælirinn er vatnsheldur svo það er ekkert mál að fara með hann í sturtu, bað, sund eða gufu. Ef þú syndir reglulega er gott að setja vatnsheldan plástur yfir mælinn (fáanlegur í flestum apótekum).
Er mælirinn einnota og óvirkur eftir 14 daga?
- M1 mælirinn endist í 14 daga og verður óvirkur eftir það. Blóðsykurs upplýsingarnar eru hinsvegar alltaf aðgengilegar í appinu. Mælirinn er því hugsaður sem ákveðinn "heilsuskóli" þar sem þú safnar upplýsingum í 14 daga um hvernig þinn blóðsykur svarar mismunandi matvælum, hreyfingu, svefni, streitu og öðrum lífsstílsháttum.
Í kjölfar þessara 2 vikna getur þú notað upplýsingarnar til að sérsníða betur þitt mataræði og lífsstíl að þínum líkamsþörfum.